| Lög |
|
|
|
|
Samþykktir félagsins • 1. gr. Nafn félagsins og heimilisfang. Heiti félagsins er Félagið ÞEYR. Heimili þess er; Álftahólar 6, 1c 111 Reykjavík. • 2. gr. Félagsmenn. Félagið er opið öllum þeim mótorhjólamönnum og konum sem reka mótorhjól, hafa áhuga á akstri mótorhjóla og öryggi mótorhjólamanna og greiða félagsgjöld. Halda skal félagaskrá. • 3. gr. Markmið félagsins. Markmið félagsins er að efla félagsmenn til dáða, efla öryggi mótorhjólafólks og að vera sameiginlegur vettvangur mótorhjólafólks. Markmiðum sínum hyggst félagið m.a. ná með því að halda fundi og fyrirlestra fyrir félagsmenn. • 4. gr. Tekjur félagsins. Tekjur félagsins eru félagsgjöld. Félagsgjald er innheimt 12 sinnum á ári og er 1.000 krónur á mánuði. Félagsgjöld standa straum af kostnaði vegna aðalfunda, annarra funda félagsins og öðrum kostnaði vegna starfsemi félagsins. • 5. gr. Félagsfundir. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok janúars ár hvert og skal fundur boðaður skriflega til félagsmanna með minnst 7 daga fyrirvara. Í aðalfundarboði skal auk tilkynningar um dagskrá óskað eftir framboðum til stjórnar félagsins og annarra trúnaðarstarfa. Félagsfundur er lögmætur ef að hann er löglega boðaður. Hver félagsmaður hefur eitt atkvæði á fundum félagsins. Rétt til setu á félagsfundum eiga allir félagsmenn. Rétt til atkvæðis á aðalfundi og öðrum félagsfundum eiga þeir félagsmenn sem staðið hafa skil á félagsgjaldi yfirstandandi starfsárs. Fundargerðarbók skal haldin og í hana skráð það sem gerist á aðalfundum, stjórnarfundum og efni fræðslufunda. • 6. gr. Dagskrá aðalfundar. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins. 3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár kynntur og lagður fram til samþykktar. 4. Umræður um skýrslu stjórnar. 5. Breytingar á samþykktum. 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna. 7. Ákvörðun um félagsgjald og gjalddaga þess. 8. Önnur mál og umræður. • 7. gr. Stjórn. Stjórn félagsins skal skipuð formanni, 2 aðalmönnum og 1 varamanni, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Enginn skal sitja í stjórn lengur en fjögur starfsár. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins og gætir hagsmuna þess á grundvelli samþykkta þess og ákvarðana félagsfunda. Formaður stjórnar og boðar til stjórnarfunda. Stjórnarfundir eru lögmætir ef þrír stjórnarmenn sækja fundinn. • 8. gr. Starfsár - reikningsár. Starfsár félagsins er milli aðalfunda þess. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórnin skal hafa ársreikning endurskoðaðan af skoðunarmönnum tilbúinn fyrir aðalfund ár hvert. • 9. gr. Breytingar á samþykktum þessum. Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundum félagsins, ef breytingartillaga fær 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillögur að breytingum þurfa að berast stjórninni eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Tillögur til breytinga á samþykktum þessum skal kynna um leið og boðað er til aðalfundar. • 10. gr. Slit félagsins. Ákvörðun um slit félagsins er háð samþykki 2/3 hluta félagsmanna á félagsfundi, sem kveður jafnframt á um hvernig farið skuli með eignir og skuldir félagsins. Þannig samþykkt á aðalfundi félagsins í Reykjavík, janúar 2009. |
| Ţeyr mótorhjólaklúbbur | Reykjavik | PCs |



